Fern furðuleg ummæli Gústafs Níelssonar

Uppfært kl. 12.05: Skipan Gústafs hefur verið dregin til baka.

Ákvörðun Framsóknar og flugvallarvina að skipa Gústaf Níelsson sem varamann í mannréttindaráð borgarinnar hefur vakið mikla athygli. Í fyrstu fréttinni um málið á Vísi kemur fram að Gústaf sé flokksbundinn Sjálfstæðismaður og að hann hafisætt harðri gagnrýni fyrir ummæli sín í garð múslíma en hann hefur lýst því yfir opinberlega að hann sé á móti mosku í Reykjavík.

Gústaf skrifaði líka þessa grein um réttindi samkynhneigðra árið 2005. Skoðum nokkur ummæli úr greininni og um leið hvað nýjasti varamaðurinn í mannréttindaráði Reykjavíkur hefur að segja:

 

„Vissulega þarf mikið hugmyndaflug til að gera tvo karla að hjónum eða tvær kerlingar, en félagsfræðiþjóðfélagið lætur ekki að sér hæða; þar skal allt leyfilegt óháð staðföstum grunngildum, sem þó hafa agað mannskepnuna í aldanna rás.“

„Er það ekki hámark sjálfselskunnar að leggja ást á sitt eigið kyn, og slík ást getur aldrei borið ávöxt.“

ts6JK

„Það hefur löngum verið þekkt að sumt fólk leggur ást á sitt eigið kyn, en það er ekki þar með sagt að slík háttsemi sé eðlileg, heldur þvert á móti.“

OK-animated-gif

„En hin kristnu samfélög Vesturlanda eru frjálslynd og umburðarlynd. Þau skilja að sum okkar eru öfugsnúin og afbrigðileg og láta refsilaust í dag, enda kærleiksboðskapurinn grunntónn í trúnni. En fyrr má nú rota en dauðrota, það var aldrei meiningin að leiða hið afbrigðilega og ófrjóa til öndvegis.“

man-standing-in-the-rain-gif (1)

Auglýsing

læk

Instagram