Grænmetissulta ekki fyrir grænmetisætur

Grænmetissulta frá Kjarnafæði hentar ekki grænmetisætum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökum Grænmetisæta á Íslandi á Facebook.

Í fréttum RÚV í gær kom fram að grænmetissultan var hugsað sem valkostur á þorranum fyrir grænmetisætur og ungt fólk sem ólst ekki upp við neyslu á súrmat.

Í tilkynningunni frá samtökum grænmetisæta kemur fram að grænmetissultan inniheldur matarím:

Umrædd vara hentar því ekki grænmetisætum og vegan þar sem matarlím (öðru nafni gelatín) er unnið úr sinum og beinum og öðrum líkamsleifum spendýra.

Samtök grænmetisæta fagna þó allri nýsköpun sem snýr að auknu framboði grænmetisfæðis. „Og það er mikið gleðiefni að meira að segja kjötframleiðendur séu farnir að huga að þessum hratt vaxandi hópi neytenda.“

Auglýsing

læk

Instagram