Gunnar Nelson dansar við Chandelier

Árshátíð Mjölnis var haldi um síðustu helgi. Hefð er fyrir því að sýna grínmyndbönd og í einu þeirra fer Gunnar Nelson á kostum í dansi við smellinn Chandelier eftir Siu ásamt fleiri þjálfurum Mjölnis.

Sjá einnig: Tíu bestu augnablikin úr dansmyndbandi Gunnars Nelson

Myndbandið er í anda myndbandsins við lagið sem kom út í fyrra en þar vakti hin 12 ára gamla Maddie Ziegler heimsathygli fyrir danshæfileika. Hvort Gunnar og félagar séu jafn góðir verður að liggja milli hluta en þeir eru allavega afar tignarlegir.

Ásamt Gunnari koma fram bardagakappinn Árni Ísaksson, glímumeistarinn Þráinn Kolbeinsson og þjálfarinn Henning Jónasson.

Auglýsing

læk

Instagram