Horfðu á umtalaðasta tónlistarmyndband landsins

Umtalaðasta tónlistarmyndband landsins var frumsýnt í gær. Myndbandið er við lagið Enginn þríkantur hér með Leoncie og Ella Grill.

Myndbandið komst í fréttirnar á dögunum þegar Leoncie sagðist í yfirlýsingu ætla að kæra Eirík Jónsson, ritstjóra Séð & heyrt, eftir að frétt um upptökur á myndbandinu birtist í blaðinu.

Minnst var á aldur Leoncie í blaðinu og bent á að 44 ára aldursmunur var á henni og rapparanum Ella Grilli. Hún var afar ósátt við það.

Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=0WFYrWEjkiI

 

Auglýsing

læk

Instagram