Íslenskar stelpur vilja frekar sæta stráka en massaða

Íslenskar stelpur vilja stráka með falleg andlit frekar en massaða stráka. Þetta var niðurstaða óvísindalegrar könnunar sem Youtube-bloggarinn Adrian Gee gerði í Reykjavík á dögunum.

Adrian Gee er vinsæll „Youtube-ari“ en um 1,2 milljónir eru áskrifendur að stöðinni hans þar. Hann fjallar mikið um samskipti kynjanna í myndböndum sínum en utan þess þjálfar hann stráka í að reyna við stelpur.

Hann spurði íslenskar sem og útlenskar stelpur: Ef þær þyrftu að velja hvort þær myndu velja strák með fallegt andlit eða stóra vöðva?

Svörin létu ekki á sér standa því allar stelpurnar sem Gee ræddi við vildu frekar stráka með fallegt andlit. „Andlitið er það fyrsta sem þú sérð,“ segir ein stelpan.

Sjáðu þessa hávísindalegu könnun hér

Auglýsing

læk

Instagram