Johnny Depp virtist vera blindfullur á sviði á verðlaunaafhendingu

Stórleikarinn og kyntröllið Johnny Depp virtist hafa fengið sér aðeins of marga áður en hann steig á svið á Hollywood Film Awards-hátíðinni a föstudag. Depp tók eiginlega Jack Sparrow á þetta. Myndbandið má sé hér fyrir neðan.

„Þetta er skrýtnasti hljóðnemi sem ég hef á ævi minni séð,“ muldraði Depp þegar hann steig á sviðið. Hann átti að kynna heimildarmynd Mike Myers um Shep Gordon og kom því svona tæplega frá sér.

„Þetta er eitt af þessum kvöldum,“ sagði Depp áður en skipt var yfir í brot úr myndinni. Samkvæmt vef Variety sagði Mike Myers að ræða Depp hafi verið „mjög rokk og ról.“

http://youtu.be/7CBsBvT_D3E

Auglýsing

læk

Instagram