Karl og kona úrskurðuð látin eftir slys í Villingavatni

Parið sem varð fyrir slysi í Villingavatni, við Þingvallavatn, í gær er látið. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Tilraunir til endurlífgunar báru ekki árangur og voru þau úrskurðuð látin í gærkvöldi. 

Þau voru á fimmtugsaldri og frá Bandaríkjunum en að ósk aðstandenda verða nöfn þeirra ekki birt strax. Rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi og tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu annast rannsókn slyssins. 

Tilraunir til endurlífgunar karls og konu, à fimmtugsaldri, frá Bandaríkjunum, sem flutt voru frá Villingavatni á…

Posted by Lögreglan á Suðurlandi on Mánudagur, 21. maí 2018

Auglýsing

læk

Instagram