Lögreglan varar við símaþrjótum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sendi frá sér yfirlýsingu á Facebook í gærkvöldi þar sem hún varar við símasvindlurum sem hringja í fólk frá erlendu símanúmeri. Lögreglan hefur fengið fjölda ábendinga frá fólki sem fengið hefur símtal frá furðulegum númerum. Allir hafa sömu sögu að segja, það er hringt og skellt á nær samstundis.

Hring­ing­arn­ar gætu haft þann til­gang ein­an að hafa fé af fólki sem svar­ar eða hring­ir til baka.“Góð regla er að svara ekki þegar hringt er úr núm­er­um sem þið ekki kann­ist við né hringja til baka,“ seg­ir í tilkynningu lögreglu.

Símanúmerið sem hringt er úr hefst á svæðisnúmerinu 881, en það númer er ekki tengt ríki, heldur er þetta alþjóðlegt svæðisnúmer gervihnattasamskiptatækja.

Auglýsing

læk

Instagram