Mammút ferðast um Evrópu með Of Monsters and Men

Mammút hitar upp fyrir Of Monsters and Men á Evróputúr hljómsveitarinnar í haust og vetur. Ferðalagið hefst í lok október í Noregi. Hljómsveitirnar koma svo við í Svíþjóð, Danmörku, Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi, Austurríki, Ítalíu Sviss, Belgíu Bretlandi og Írlandi.

Sjá einnig: Ný plata Of Monsters and Men beint í þriðja sæti bandaríska Billboard-listans

Ný plata Of Monsters and Men, Beneath the Skin, fór beint í þriðja sæti bandaríska Billboard-listans, í júní. Hún er sem stendur í 63. sæti listans.

Mammút gerði á dögunum samning við Bella Union útgáfuna sem er með listamenn á borð við Fleet Foxes, The Flaming Lips, John Grant og Father John Misty á sínum snærum.

Mammút kemur fram í Gamla bíói á fimmtudaginn ásamt Samaris. Þetta eru einu tónleikar hljómsveitarinnar hér á landi í bili.

Auglýsing

læk

Instagram