Manndráp í Vesturbæ Reykjavíkur

Kona fannst látin í íbúð á Hagamel í Vesturbæ Reykjavíkur í kvöld. Tveir menn eru í haldi lögreglu og annar þeirra er undir meiri grun en hinn um aðkomu að dauða hennar. Þetta kemur fram á Vísi.

Í frétt Vísis kemur fram að tilkynning hafi borist til lögreglu um tíuleytið í kvöld. Sérsveit ríkislögreglustjóra fór á staðinn ásamt lögreglu og sjúkrabíl.  Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu, staðfestir við Vísi að grunur sé um líkamsárás sem leiddi til dauða konunnar.

Auglýsing

læk

Instagram