Mörg þúsund manns vildu ilmkerti með lykt af kjúklingi frá KFC

Fleiri en fimmtán þúsund athugasemdir voru skrifaðar við færslu á Facebook-síðu matsölustaðarins KFC á Nýja Sjálandi.

Færslan vakti gríðarlega mikla athygli en í boði var ilmkerti með lykt af kjúklingnum vinsæla fyrir bestu hugmyndina að annarri vöru sem hægt væri að framleiða undir merkjum KFC.

Leikurinn er hluti af aðventudagatali staðarins þar í landi.

Ýmsar hugmyndir bárust og vildi einn þeirra sem tók þátt eiga nuddolíu sem bragðast eins og kjúklingurinn. Þá vildi hann einnig eiga ilmjurtir með kjúklingalyktinni  til að setja í nærfataskúffuna.

Vinningurinn fór aftur á móti til þátttakanda sem lagði til að KFC myndi framleiða frímerki.

Auglýsing

læk

Instagram