Neil Patrick Harris kynnir á Óskarsverðlaununum

Leikarinn Neil Patrick Harris verður kynnir á Óskarsverðlaununum 22. febrúar. Þetta staðfesti hann með eftirfarandi myndbandi á Instagram:

Wird geladen

It’s been quite the day…

Auf Instagram anzeigen

Neil Patrick Harris bætist þannig í góðan hóp grínista sem hafa tekið að sér að kynna Óskarsverðlaunin.

Ellen DeGeneres gerði það í fyrra, Seth MacFarlane, skapari Family Guy, á undan henni og Billy Crystal árið þar áður. Undanfarin ár hafa Anne Hathaway og James Franco, Steve Martin og Alec Baldwin, Hugh Jackman og Jon Stewart meðal annars verið kynnar.

Harris hefur áður verið kynnir á Emmy- og Tony-verðlaununum en þetta verður í fyrsta skipti sem hann kynnir Óskarsverðlaunin. Hann kom reyndar fram í opnunaratriði hátíðarinnar árið 2010:

Auglýsing

læk

Instagram