Réðust á mann sem sprautaði á þá vatni á þvottaplani N1 við Hringbraut

Þrír menn réðust á mann á þvottaplani N1 við Hringbraut í gærkvöldi og voru í kjölfarið handteknir. „Þarna voru menn að þvo bifreiðar sínar og hafði vatn farið yfir eina bifreiðina og á mann sem var að þvo í næsta stæði,“ segir í tilkynningu frá lögreglu.

Sá hélt að þetta hafi verið gert viljandi og sprautaði vatni til baka á geranda. Þá réðst gerandi ásamt tveimur félögum sínum á manninn sem forðaði sér inn í bifreið sína þar sem unnusta hans sat undir stýri og reyndi hún að aka á brott.

Fát kom á konuna sem ók utan í bifreið gerandans þannig að slagsmálin héldu áfram. „Árásarmennirnir þrír voru handteknir og færðir á lögreglustöð en árásarþoli fór á slysadeild. Meiðsl sögð minniháttar,“ segir lögreglan.

Auglýsing

læk

Instagram