Segist ekki hafa sagt að Sigurður Ingi sé skrýtinn þegar hún hvíslaði undir orðum hans í beinni á RÚV

Sigríður Bylgja Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Pírata, segir að Birgitta Jónsdóttir, formaður Pírata og frambjóðandi flokksins, hafi ekki sagt að Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, sé skrýtinn í beinni á RÚV í gærkvöldi.

Leiðtogar stjórnmálaflokkanna tólf sem bjóða fram í Alþingiskosningunum sem fara fram í dag mættust í sjónvarpssal á RÚV í gærkvöldi. Tekist var á um ýmis málefni.

Sigríður Bylgja hefur eftir Birgittu að hún hafi verið að segja að það væri skrýtið að segja að það væri uppboðskerfi í Rússlandi og að hún hafi þar með verið að vísa í orð Sigurðar Inga þar á undan. Hún hafi ekki verið að segja að Sigurður Ingi sé skrýtinn.

Sjá einnig: Myndband: Birgitta hvíslaði „hann er skrýtinn“ þegar Sigurður Ingi talaði í beinni á RÚV

Það vakti athygli að í eitt skiptið þegar Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og frambjóðandi Framsóknarflokksins, hafði orðið hvíslaði Birgitta Jónsdóttir, formaður Pírata: „Hann er skrýtinn“.

 

Í þættinum gaf Birgitta sig af og til á tal við Oddnýju Harðardóttur, formann Samfylkingarinnar, sem var henni á vinstri hlið. Ekki er ólíklegt að hún hafi verið að tala við hana.  Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, var Birgittu á hægri hlið.

Hér er hægt að sjá viðræðurnar í heild sinni

Auglýsing

læk

Instagram