Selja „glæsilegan“ 5.000 kall með afslætti

Vefverslunin Heimkaup býður viðskiptasínum upp á að kaupa 5.000 króna seðil á aðeins 4.999 krónur. Seðillinn ku vera spegilsléttur og glæsilegur og fram kemur að hann sé frábær í fermingarkortið.

Guðmundur Magnason segir eitthvað af seðlum hafa selst í morgun. „Einhverja vantar kortið og svoleiðis og vilja hafa seðilinn spegilsléttan í umslaginu,“ segir hann léttur.

Hann segir seðilinn sérstaklega henta þeim sem komast ekki í veislur í öðrum landshlutum og segist einnig hafa fengið pantanir erlendis frá.

Svo er sumt fólk í fríi þegar veislan og vill geta sent gjöf á frænda eða frænku og gerir það í gegnum þetta.

Guðmundur segir að afslátturinn af seðlinum skrifist á húmor en 5.000 krónur hjá þeim kosta 4.999 krónur.

Auglýsing

læk

Instagram