Skemmdarvargar spreyjuðu ókvæðisorðum á Akureyrarkirkju í skjóli nætur, jarðarför framundan í dag

Spreyjað var á fram- og suðurhlið Akureyrarkirkju með svörtum úðabrúsa í nótt. Skemmdarverkið hefur verið tilkynnt til lögreglu.

Útför fer fram frá kirkjunni í dag en ekki er víst að náist að fjarlægja skemmdarverkin í tæka tíð áður en hún hefst.

Svavar Alfreð Jónsson, sóknarprestur, staðfestir þetta í samtali við Nútímann en hann birtir myndir af skemmdarverkunum á Facebook-síðu sinni í morgun.

Hann segist hafa fengið óljósar fregnir af því að fleiri hús á Akureyri hafi fengið sömu útreið í nótt.

Úðabrúsi fannst við kirkjuna í morgun. Búið er að hafa samband við lögreglu og tryggingafélag vegna málsins.

Uppfært kl. 9.20: 

Sambærileg skemmdarverk voru unnin á Kaþólsku kirkjunni á Akureyri í nótt.

Auglýsing

læk

Instagram