Skipa gestum að þvo sér upp úr „súpu“ áður en þeir fara ofan í Laugardalslaug

Sundlaugargestum í kvennaklefa Laugardalslaugarinnar er sagt að þvo sér með súpu  áður en þeir halda til laugarinnar. Sérstaklega er tekið fram að súpan sé ókeypis.

Þetta kemur fram á nýju skilti í klefanum, skilti þar sem gestum er greint frá reglunum sem gilda í lauginni.

Líklegt verður að teljast að um stafsetningarvillu sé að ræða og þarna sé átt við sápu (e. soap), ekki súpu (e. soup).

 

 

Auglýsing

læk

Instagram