Sonur mannsins sem var felldur á flótta leiddi Ronaldo út á völlinn fyrir leik

Zied, sonur Sýrlendingsins Osama Abdul Mohsen, leiddi Cristiano Ronaldo út á völlinn fyrir leik Real Madríd og Granada í spænsku úrvalsdeildinni í gær. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Feðgarnir komust í heimsfréttirnar á dögunum þegar ungverskur myndatökumaður brá fæti fyrir Osama þar sem hann hljóp með Zied í fanginu frá ungverskum lögreglumönnum á landamærum Ungverjalands og Serbíu.

Osama starfaði sem fótboltaþjálfari í heimalandi sínu en hann og tveir synir hans eru komnir til Spánar. Fótboltaskólinn Cenafe í úthverfi Madrídar hefur boðið honum starf og íbúð.

Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

No te pierdas las imágenes de Zied saltando al terreno de juego con Cristiano Ronaldo! ⚽Don’t miss this video of Zied’s special day, when he walked out with Cristiano Ronaldo! ⚽#HalaMadrid

Posted by Real Madrid C.F. on Sunday, September 20, 2015

Auglýsing

læk

Instagram