Ísland vann í kvöld Holland 2-0 í undankeppni Evrópumótsins í Frakklandi sem fer fram árið 2016. Gylfi Sigurðsson skoraði bæði mörk íslenska liðsins sem átti frábæran leik.
Stemningin var frábær á Laugardalsvelli og var hún fönguð á Instagram.
Hér sést t.d. þegar Gylfi skorar fyrra markið úr víti og Hörður Ágústsson, framkvæmdastjóri Maclands, hvíslar: „Skoraðu. Skoraðu, elsku vinur.“
Seinna mark Gylfa var stórkostlegt.
Loading
#lordgylfi View on Instagram
Haukur Harðarson lýsti leiknum á RÚV og var yfir meðallagi kátur eftir leikinn.
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, birti þetta myndband af fagnaðarlátunum í lok leiks.
Loading
Svona hljómar sigur granítharðrar pínuþjóðar yfir hrokahausum með fingravettlinga #áframÍsland #ekkibúinaðgleymaIcesave View on Instagram