Stony gaf gestum Hörpu gæsahúð

Ráðstefnan Sko var haldin í Hörpu í gær. Fjallað var um markaðsmál á netinu og tónlistarmaðurinn Þorsteinn Sindri Baldvinsson, betur þekktur sem Stony, stal senunni þegar hann sýndi nýtt myndband þar sem hann rekur hvernig netið skaut honum upp á stjörnuhimin á örskömmum tíma og kom honum í samband við alþjóðleg fyrirtæki og stórstjörnur.

Myndbandið má sjá hér fyrir neðan.

Stony kom fram í alþjóðlegri herferð Pepsi í sumar ásamt fótboltaköppum á  borð við Lionel Messi, Sergio Ramos, Jack Wilshere og Robin van Persie.

Í heimildarmyndbandinu segir Stony frá því hvernig hann lærði að nota samfélagsmiðla á borð við Facebook, Twitter og YouTube, til að koma sér á framfæri. Hann deildi myndböndum af sér vera að tromma en sá fljótlega að hann yrði að gera eitthvað öðruvísi til þess að skera sig úr öðrum áþekkum myndböndum á netinu.

Allt breyttist þegar hann gerði sína eigin útgáfu af þekktu lagi Macklemore, Can‘t Hold Us, þar sem hann notaði m.a. bílhurð, glös og örbylgjuofn til að búa til hljóðin og myndbandið sló í gegn.

Stony lýsti því svo hvernig honum leið þegar hann fékk skilaboð nokkrum dögum síðar frá sjónvarpsmanninum Ryan Seacrest og var flogið út með dags fyrirvara á fund með forsvarsmönnum Pepsi í New York þar sem myndbandið hans var leikið upp á stórum skjá.

Um 400 manns sóttu ráðstefnuna og að henni stóðu Já og Góð samskipti. Stony var viðstaddur ráðstefnuna og hlaut dynjandi lófaklapp ráðstefnugesta eftir sýningu myndbandsins sem framkallaði gæsahúð margra viðstaddra.

Aðrir sem tóku til máls á ráðstefnunni voru Pollyanna Vincent, stjórnandi hjá TripAdvisor, Arnt Eriksen, stofnandi Rethink, Sigríður Margrét Oddsdóttir, forstjóri Já, Andrés Jónsson almannatengill og Magnús Hafliðason, rekstrarstjóri Domino‘s í Noregi.

Auglýsing

læk

Instagram