Traust fólks til mbl.is og Fréttablaðsins dregst töluvert saman, flestir bera mikið traust til RÚV

Fleiri bera lítið traust til fjölmiðla í dag heldur en fyrir tveimur árum síðan.

Þetta sýnir könnun MMR á trausti til fjölmiðla sem lauk þann 14. desember síðastliðinn.

Af þeim fréttamiðlum sem kannaðir voru báru flestir svarendur mikið traust til Fréttastofu RÚV (69%) og ruv.is (67%).

Í flokki netfréttamiðla naut mbl.is næst mest trausts meðal almennings, á eftir ruv.is.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 41% bera mikið traust til mbl.is. Traust til mbl.is hefur dregist töluvert saman frá nóvember 2013 þegar 50% aðspurðra sögðust bera mikið traust til mbl.is.

Af þeim sem tóku afstöðu nú sögðust 33% bera mikið traust til visir.is, 31% sögðust bera mikið traust til kjarninn.is, 28% til stundin.is, 17% til vb.is og 8% til dv.is.

Sá prentmiðill sem flestir báru mikið traust til var Morgunblaðið (37%). Þar á eftir fylgdi Fréttablaðið (30%), en þeim sem sögðust bera mikið traust til Fréttablaðsins hefur fækkað um 9% síðan árið 2013.

27% svarenda sögðust bera mikið traust til Viðskiptablaðsins, 26% sögðust bera mikið traust til Stundarinnar og 25% til Fréttatímans. 7% svarenda sögðust bera mikið traust til DV.

Ekki var hægt að velja Nútímann í könnun MMR.

Auglýsing

læk

Instagram