Besta augnablikið á Eddunni var þegar Baldvin Z tilkynnti forsetaframboð Boga Ágústs

Edduverðlaunin voru í beinni útsendingu á RÚV, SkjáEinum og Hringbraut í kvöld.

Ýmislegt skemmtilegt gekk á en uppáhaldsaugnablikið okkar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Það var þegar leikstjórinn Baldvin Z tilkynnti um forsetaframboð Boga Ágústssonar og hrópaði: „Bogi á Bessastaði!“

Salurinn tók að sjálfsögðu vel í hugmyndina en Bogi varð skrýtinn á svipinn og sagði „Eða ekki“ og útilokaði svo alveg framboð.

Auglýsing

læk

Instagram