Justin Bieber gengur út úr viðtali á Spáni, spurður hvort hann klæði sig sjálfur

Söngvarinn Justin Bieber gekk út úr útvarpsviðtali á Spáni á dögunum. Honum virðist hafa mislíkað spurningarnar en svo virðist einnig sem útvarpsmennirnir hafi verið að leitast eftir athyglinni, þeir vildu að minnsta kosti „brjóta internetið“. Sjáðu viðtalið hér fyrir ofan.

Viðtalið er ansi vandræðalegt og Bieber virðist bæði pirraður og ringlaður á meðan á því stendur. Í myndbandinu má sjá lokaaugnablik viðtalsins þar sem hann er meðal annar spurður hvort hann klæði sjálfan sig.

Stjórnendur þáttarins reyna svo að fá Bieber til að spila með í einhvers konar gjörningi þegar hann stendur upp og gengur á dyr. Þau kalla á eftir honum en allt kemur fyrir ekki. Hann er farinn.

Auglýsing

læk

Instagram