Kendall Jenner borðar McDonalds ber að ofan, myndband með degi í lífi fyrirsætunnar

Kendall Jenner, ein af Kardashian-systrunum, leikur á als oddi í nýju myndbandi sem tískutímaritið Vogue hefur birt á Youtube. Jenner er ein af fremstu fyrirsætum heims um þessar mundir og tímaritið fékk að fylgja henni eftir á tískuvikunni í New York.

Sjáðu myndbandið hér fyrir neðan.

Kendall sést meðal annars fullnýta tíma sinn með því að raka á sér lappirnar í leigubíl, hanga með vinkonu sinni, fyrirsætunni Gigi Hadid og borða mat frá McDonalds í miðri myndatöku.

Og hver kom með matinn? Auðvitað stóra systir: Kim Kardashian. Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram