Myndband: Rapparinn Joey Christ leikur alræmdan undirheimahund í Stellu Blómkvist

Jóhann Kristófer Stefánsson, best þekktur sem rapparinn Joey Christ, fer með hlutverk í þáttunum Stella Blómkvist sem detta inn í Sjónvarp Símans 24. nóvember. Horfðu á brot úr þáttunum hér fyrir ofan.

Joey Christ er einn heitasti rappari landsins um þessar mundir en áhorfin á myndbandið við lagið Joey Cypher, sem hann flytur ásamt Herra Hnetusmjöri, Birni og Aroni Can eru komin yfir 450 þúsund á Youtube. Þá eru spilanirnar á Spotify komnar yfir 990 þúsund.

Nútíminn birtir klippu úr Stellu Blómkvist en Joey leikur eitt af alræmdari botndýrum úr undirheimum Reykjavíkur, samkvæmt Stellu sjálfri. Þættirnir eru byggðir á bókunum um Stellu Blómkvist sem margir þekkja en fáir vita hver skrifar bækurnar. Stella er leikin af Heiðu Rún sem margir þekkja úr þáttunum Poldark.

Auglýsing

læk

Instagram