Myndband: Sviðsmynd hrundi á Marilyn Manson á miðjum tónleikum

Tónlistarmaðurinn Marilyn Manson var fluttur á sjúkrahús á laugardaginn eftir að sviðsmynd hrundi á hann á miðjum tónleikum.

Tónleikarnir sem fram fóru á Manhattan Center Hammerstein höllinni voru ekki nema klukkutíma gamlir þegar óhappið varð. Manson lá óvígur á sviðinu í um fimmtán mínútur áður en hann var fluttur á brott á sjúkrahús.

The Guardian greinir frá því að Manson hafi aflýst níu tónleikum í kjölfar slyssins.

Myndband af atvikinu má sjá í spilaranum hér að ofan

Auglýsing

læk

Instagram