JóiPé x Króli sampla Bubba í nýju myndbandi: B.O.B.A.

Íslenskt

Næstkomandi föstudag ætlar tvíeykið JóiPé & Króli að gefa út plötuna GerviGlingur. Platan inniheldur meðal annars lagið B.O.B.A. en myndband við lagið rataði á Youtube í dag (sjá hér fyrir ofan).  

Lagið hefst á kunnuglegu sampli frá því að Bubbi Morthens mismælti sig við lýsingu á hnefaleikum í beinni útsendingu (ca. 0:04):

„Þetta var algjör bomba! Segi og skrifa: B.O.B.A. Boooomba!“

– Bubbi Morthens

Jafnframt byggist viðkvæði lagsins á fyrrnefndri setningu Bubba:

B.O.B.A. /
Það er bomba /
Fíla ekki góðar píur /
Bara vondar /

Lagið pródúseraði Þormóður Eiríksson en hann sá einnig um hljóðblöndun og masteringu lagsins í samstarfi við $tarra. Myndbandinu leikstýrði Hlynur Hólm Hauksson. 

Hér fyrir neðan má svo sjá myndband af heimsókn tvíeykisins í útvarpsþáttinn Kronik.

Auglýsing

læk

Instagram