Tónlist verið „mikill bjargvættur í mínu lífi.“—SKE spjallar við Ingibjörgu

Viðtöl

SKE: Fyrr á þessu ári gaf hin breska Arlo Parks út lagið „Super Sad Generation“ (Ofursorgmædda kynslóðin) sem hefur notið talsverðra vinsælda á Soundcloud og Spotify. Titill lagsins vísar í Z-kynslóðina, sem að mati Parks er kviksjá dapurleika, ástríðu og kvíða: Það má segja að það sé furðuleg blanda depurðar og einlægni sem gegnsýrir þessa kynslóð.“ Íslenska tónlistarkonan og ljóðskáldið Ingibjörg tilheyrir þessari kynslóð—fólk sem er fætt á árabilinu 1995-2005 tilheyrir Z-kynslóðinnien ólíkt jafnöldrum sínum, þ.e.a.s. ef eitthvað er að marka uppáhalds tilvitnun hennar, þá streitist Ingibjörg gegn þessum stimpli: Það er ekkert mál að vera vansæll, segir hún, og vísar í Thom Yorke: Það er erfiðara, og svalara, að vera hamingjusamur. Finnst undirrituðum þetta vera stórgóð speki (þó það sé vissulega ýmislegt til að svekkja sig yfir). En hvað um það … Ingibjörg gaf nýverið út lagið „Dance Again“ og í tilefni útgáfunnar heyrði SKE í Ingibjörgu og spurði hana út í listina og lífið. Gjörið svo vel. 

Viðtal: RTH
Viðmælandi: Ingibjörg Helga Steingrímsdóttir

SKE: Nú er Verslunarmannahelgin genginn í garð: Gerðirðu eitthvað sniðugt og hvaða lag hlýddirðu oftast á?

Ingibjörg: Um verslunarmannahelgina fór ég til Vínar með vinum mínum og nú erum við í Ungverjalandi í kastala þar sem við ætlum að njóta lífsins í 10 daga í hitanum. Lagið sem hefur verið á repeat þessa dagana er Juice með Lizzo því það kemur manni alltaf í gott skap og er alveg tilvalið að dansa við.

SKE: Fyrir þá sem ekki þekkja til Ingibjargar Helgu—hver er hún og fyrir hvað stendur hún?

Ingibjörg: Ég er 23 ára tónlistarkona og ljóðskáld úr Kópavoginum. Góð tónlist hefur verið mikill bjargvættur í mínu lífi og ég vil að fólki líði vel þegar það hlustar á tónlistina mína. Þá er takmarkinu náð.

SKE: Þú varst að gefa út lagið Dance Again. Hvernig kom lagið til og hvernig var sköpunarferlið?

Ingibjörg: Lagið kom fyrst til mín þegar ég skrifaði nokkrar textalínur upp í tölvunni minni. Ég pældi reyndar ekki í þeim í margar vikur fyrr en ég rambaði á góðan hljómagang á píanóinu sem mér fannst hljóma vel við textann. Ég prófaði að blanda lagi og texta saman og fannst undirstöðurnar nógu fínar til þess að leika mér með þetta og fínpússa í nokkra daga. 

SKE: Grundvallast texti lagsins í raunveruleikanum eða er þetta alfarið spuni?

Ingibjörg: Minn innblástur fyrir textann var auðvitað mitt líf og umhverfi en ég setti líka inn orð sem pössuðu við þemað: það að líða vel og finna gleðina í því að þora að vera maður sjálfur. Þegar maður er kominn með eina hugmynd er ekki svo erfitt að halda áfram að spinna textann.

SKE: Undirritaður er á því að lagið Closing Time eftir Tom Waits eigi erindi til allra tónlistarunnennda. Að þínu mati: Eitt lag sem allir verða að heyraog hvers vegna?

Ingibjörg: Mér finnst að allir ættu að hlusta á lagið Bandit með Neil Young, þó það væri ekki bara nema fyrir viðlagið: „Some day you’ll find everything you’re looking for.“ Lagið hefur einfaldan boðskap sem allir hafa gott af því að heyra við og við; að það sé allt í lagi að hafa ekki allt á hreinu og að framtíðin hafi alltaf möguleika á því að vera stórkostleg. Þess fyrir utan er þetta einstaklega fallega gerð tónsmíð.

SKE: Uppáhalds tilvitnun eða textabrot?

Ingibjörg: Uppáhaldstilvitnunin mín er, „It’s easy being miserable. Being happy is tougher—and cooler.“
– Thom Yorke

SKE: Bandaríski rithöfundurinn William Faulkner sagði eitt sinn að „aðeins átök hjartans eru verðug þess að skrifa um. Hvaða togstreita brýst um í hjarta Ingibjargar Helgu um þessar mundir?

Ingibjörg: Aðaltogstreitan sem brýst um í mér þessa dagana er að vera að flytja til Þýskalands og geta ekki fengið mér pítusósu og hitt vini mína og fjölskyldu hvenær sem ég vil í náinni framtíð.

SKE: Hvaða bók hefur haft hvað mestu áhrif
á þig?

Eleanor Oliphant Is Completely Fine fannst mér vera besta og mannlegasta bók sem ég hef lesið í langan tíma. En annars held ég að Bernskubók, Táningabók og Minnisbók Sigurðar Pálssonar hafi haft mjög djúpstæð áhrif á mig svo ég get innilega mælt með þeim líka.

SKE: Eitthvað að lokum?

Að lokum: dansaðu aftur.

(SKE þakkar Ingibjörgu kærlega fyrir spjallið og hvetur lesendur til að gefa laginu „Dance Again“ gaum. Hér fyrir neðan er svo lagið „Super Sad Generation“ eftir Arlo Parks.)

Auglýsing

læk

Instagram