Fjölskylduvænir rokktónleikar til styrktar Frosta Jay Freeman fara fram í Háskólabíói klukkan 17 í dag. Frosti er sjö ára og greindist í fyrra með mjög sjaldgæfan erfðasjúkdóm, Ataxia telangiectasia (AT). Sjúkdómur Frosta leggst meðal annars á taugakerfi og ónæmiskerfi og einkennist af vaxandi óstöðugleika hreyfingar sem leiðir til alvarlegrar færnisskerðingar. Ekki er til lækning við sjúkdómnum og því beinist meðferð fyrst og fremst að því að auka lífsgæði Frosta.
Á tónleikunum koma fram Bubbi Morthens, Daníel Ágúst, Dimma, Helgi Björns. Pollapönk, Lay Low, Pétur Ben, Smutty Smiff 302 Rockabilly house band og nokkrir meðlimir Kaleo.
Útvarpsmaðurinn Smutty Smiff skipuleggur tónleikana. Til að safna meiri peningum hafði hann samband við gamla félaga úr rokkabillísenunni, þeirra á meðal rokkljósmyndarana Mick Rock og Bob Gruen. Þetta kemur fram í sunnudagsútgáfu Morgunblaðsins.
Ég hafði samband við þá og það var eins hjá þeim. Um leið og ég hafði sagt þeim fyrir hvað þetta væri sendu þeir mér nokkrar myndir, upprunalegu myndirnar sem verða áritaðar handa kaupandanum. Mick er einn frægasti rokkljósmyndari allra tíma, og góður vinur minn, hálfgerður stjúpi minn. Ég hef þekkt hann í um 30 ár eða svo. Hann hefur myndað Syd Barrett, David Bowie, Lou Reed, Iggy Pop, Queen, the Sex Pistols, The Ramones, Blondie og fleiri og fleiri.
Myndir af Led Zeppelin, John Lennon, The Clash, David Bowie, Sex Pistols, Debbie Harry og fleiri tónlistarmönnum verða boðnar upp.
„Síðan á ég von á fleiri myndum,“ segir Smutty í Mogganum. „Ég mundi eftir einum vini mínum sem vinnur á Vanity Fair og tók myndina af Al Pacino þegar hann lék í Scarface. Hann ætlar að senda mér mynd sem hann tók í þeirri töku. Ekki sem er á kvikmyndaplakatinu en í sömu seríu. Al Pacino í hvítu jakkafötunum – það er ein uppáhaldsmyndin mín. Þetta gæti orðið að einhverjum peningum sem vonandi leysir einhver vandamál Frosta.“