Kaleo vottaði fórnarlömbum skotárásarinnar í Orlando virðingu sína í spjallþætti á NBC

Hljómsveitin Kaleo kom fram í sjónvarpþætti Seth Meyers á sjónvarpsstöðinni NBC í gærkvöldi og flutti lagið Way Down We Go. Sjáðu myndband af flutningnum hér fyrir neðan.

Strákarnir vottuðu fórnarlömbum skotárásarinnar í Orlando virðingu sína og skreyttu sviðið með regnbogafánum.

Kaleo gaf út plötuna A/B á föstudaginn og hefur verið á ferð og flugi um Bandaríkin að kynna plötuna. Sala á plötunni hefur farið af stað með látum og  náði hún hæst í þriðja sæti á Bandaríska iTunes-listanum og á toppinn í að minnsta kostu sjö öðrum löndum.

Horfðu á myndbandið hér fyrir neðan.

Auglýsing

læk

Instagram