Of Monsters and Men fluttu Alligator í beinni hjá Vevo

Það er nóg að gera hjá íslensku hljómsveitinni Of Monsters and Men um þessar mundir en sveitin undirbýr nú útgáfu nýrrar plötu og tónleikaferðalag í haust. Hljómsveitin kom fram í beinni hjá myndbandaveitunni Vevo á dögunum og flutti nýja lagið Alligator. Sjáðu myndbandið hér að neðan.

Sjá einnig: Of Monsters and Men hjá Jimmy Fallon í gær – Sjáðu magnaðan flutning þeirra

Hljómsveitin leggur af stað á tónleikaferðalag um verslunarmannahelgina til þess að kynna plötuna Fever Dream sem kemur út 26. júlí næstkomandi. Hljómsveitin mun ferðast um Bandaríkin, Kanada og Evrópu á ferðalaginu.

Lagið Alligator er fyrsta lagið af plötunni en von er á nýjum lögum á næstunni. Sjáðu sveitina flytja lagið hjá Vevo:

Auglýsing

læk

Instagram