Ryan Reynolds staðfestir að Deadpool 3 sé framundan

Kanadíski leikarinn Ryan Reynolds sem leikið hefur ofurhetjuna óhefðbundnu Deadpool í tveimur samnefndum myndum hefur staðfest að þriðja myndin um Wade Wilson sé framundan hjá Marvel Studios.

Hann hafði áður sagst telja að Deadpool ætti ekki afturkvæmt á hvíta tjaldið. Í viðtali í sumar sagði leikstjórinn Rob Liefeld að hann teldi að þriðja myndin yrði að veruleika og nú hefur Reynolds staðfest það.

Sagði Reynolds að Deadpool væri loksins orðin að stórmynd undir Marvel Studios en hann telur engu að síður að Deadpool 3 verði allt öðruvísi en fyrri myndir.

Þetta kom fram á vef Vísis.

Auglýsing

læk

Instagram