„Auðvitað er Jason Momoa í hlýrabol á Golden Globes. Hann er Aquaman.“

Leikarinn Jason Momoa mætti á Golden Globes á sunnudagskvöldið íklæddur dökkgrænum Tom Ford flauels jakka, í stíl við Fendi kjól eiginkonunnar, Lisu Bonet. En í miðri verðlaunaafhendingu var jakkinn fokinn og var leikarinn einungis í svörtum hlýrabol með hárið í snúð, við svartar sparibuxurnar.

Seinna um kvöldið sagði hann að eiginkonunni hefði verið kalt og hann hafi reddað málunum. En aðdáendur hans á Twitter létu ekki á sér standa með tístin.

„Auðvitað er Jason Momoa í hlýrabol á Golden Globes. Hann er Aquaman.“

„Getur einhver beint myndavélinni aftur að Jason Momoa á hlýrabolnum á Golden Globes?“

„Þegar þú lítur út eins og Jason Momoa, býrðu til þínar eigin fatareglur.“

jason momoa already in a tank top is sending me pic.twitter.com/XB9W3GQ2nO

— (@cIydelogan) January 6, 2020

Auglýsing

læk

Instagram