Hamborgarapizza og pizzuhamborgari – sælkerasamstarf

Hver man ekki eftir því þegar SkjárEinn var með viku þar sem umsjónarmönnum var víxlað milli þátta með eftirminnilegum hætti? Nú hafa meistararnir á bak við Hamborgarafabrikkuna og Blackbox ákveðið að vera með svipaðan gjörning og útkoman er með því betra sem sést hefur lengi.

Um er að ræða samstarf sem felur í þér að Blackbox hefur þróað pítsu sem minnir um margt á hamborgara og mætti best lýsa sem ljúffengum óði til Fabrikkunnar og þess besta sem hún hefur upp á að bjóða. Fabrikkumenn gerðu slíkt hið sama og hönnuðu hamborgara sem er í reynd pítsa. 

Það eru þeir Jóhannes Ásbjörnsson á Fabrikkunni og Karl Viggó Vigfússon á Blackbox sem eiga heiðurinn að þessu skemmtilega uppátæki en samstörf sem þessi hafa ekki verið mjög algeng hérlendis en eru vinsæl erlendis. Þar kallast kokkar og veitingastaðir á og er útkoman alla jafna stórskemmtileg. Að sögn Jóhannesar var aðdragandinn að samtarfinu hein áskorun. „Blackbox skoraði á okkur og það er ekki annað hægt en að taka svona áskorun enda vissum við að útkoman yrði geggjuð. Að búa til hamborgara undir áhrifum frá Blackbox og þeir að gera pítsu undir áhrifum frá Fabrikkunni.”

#Blackbrikkan myndbandið:

Auglýsing

læk

Instagram