Öllum verslunum Geysis lokað og starfsfólkinu sagt upp

Búið er að loka öllum verslunum Geysis og var öllu starfsfólki sagt upp í gær að viðstöddum aðila frá stéttarfélaginu VR. Þessu er greint frá á vef DV

Verslanirnar hafa notið gríðarlega mikilla vinsæla hjá ferðamönnum og hefur síðasta ár verið þungt í rekstri vegna samdráttar í ferðamannaiðnaðinum.

Fyrsta Geysis-verslunin var opnuð við Geysi í Haukadal árið 2008 en síðar opnuðu alls þrjár verslanir við Skólavörðustíg, ein í Kringlunni og ein í Hafnarstræti á Akureyri.

Auglýsing

læk

Instagram