Land heldur áfram að rísa: Virknin í eldgosinu hefur verið nokkuð stöðug

Virkni í eldgosinu hefur verið nokkuð stöðug síðan á mánudaginn 25.mars. Órói hefur haldist stöðugur síðan þá sem og virknin í gígunum þremur. Hraun rennur áfram í hrauná til suðurs frá gígunum að mestu ofan á hraunbreiðunni sem myndaðist á fyrstu dögum gossins. Meðfylgjandi mynd sýnir útbreiðslu hraunsins eins og hún var kortlögð frá gervitunglamynd síðan 26. mars og svæði þar sem breytingar hafa orðið á milli 20. og 26. mars.

Skástrikaðar þekjur sýna svæði þar sem breytingar hafa orðið á hraunbreiðunni á milli 20. og 26. mars. Sá hluti skástrikaða svæðisins sem er rauðlitaður táknar svæði þar sem hraun hafði ekki runnið yfir áður í þessu eldgosi, þ.á.m. er Melhólsnáma sunnan Hagafells. Ljósfjólubláar þekjur sýna svæði þar sem hraun rann frá eldgosum í febrúar og janúar.

Land heldur áfram að rísa í Svartsengi en mun hægar en það hefur gert fyrir þau eldgos eða kvikuhlaup sem orðið hafa á síðustu mánuðum. Það bendir til þess að enn safnist upp kvika í söfnunarsvæðið undir Svartsengi þótt það sé eldgos í gangi. Lítil sem engin skjálftavirkni hefur mælst á svæðinu.

Áfram hætta á gasmengun

Veðurstofan hefur síðustu daga, í samstarfi við Almannavarnir, bætt við gasmælum á tveimur stöðum til að fylgjast með gasmengun (SO2). Annar þeirra er staðsettur við Bláa lónið og hinn á hafnarsvæði Grindavíkur. Þetta er viðbót við þá mæla sem Umhverfisstofnun heldur úti. Báðar stöðvarnar eru að streyma gögnum á vefsíðu Umhverfisstofnunar .

Há gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2) mældust í skamma stund í Grindavík í nótt (allt upp í 9000 míkrógrömm/m3) en þau lækkuðu fljótt aftur niður í eðlileg gildi. Há gildi brennisteinsdíoxíðs (SO2) mældust í Bláa lóninu og í Höfnum í gær. Hæst fóru gildin í 7000 microgröm/m3 í Bláa lóninu og í 2000 microgröm/m3 í Höfnum. Slíkur styrkur er talinn mjög óhollur og líklegt að flestir gætu fundið fyrir einkennum í öndunarfærum. Mikilvægt er að dvelja innandyra, loka gluggum og slökkva á loftræstingu þegar svo há gildi mælast.

Huga þarf vel að málum þar sem vinna fer fram utandyra, eins og vinnueftirlitið bendir á, og þá þurfa fyrirtæki og stofnanir á suðvesturhorni landsins að huga vel að þróun loftgæða vegna mögulegrar hættu á gasmengun. Gaslosun frá eldgosinu er líkleg til að valda áfram mengun á Reykjanesskaganum og bendum við fólki á svæðinu að fylgjast með á loftgæði og kynna sér þar viðbrögð við loftmengun frá eldgosinu.

Auglýsing

læk

Instagram