Njarðvíkuræð og Suðurstrandarvegur í hættu: Stærsta gosið hingað til á svæðinu

Mikil strókavirkni var fram að miðnætti, en það dróg úr virkninni þegar leið á nóttina. Áfram er samt töluvert hraunrennsli. Hraunið norðan við Svartsengi er áfram í um 250m fjarlægð frá Njarðvíkuræð. Sunnnan við Hagafell hefur hraun runnið við hlið varnargarðs. Þar stöðvaðist rennslið um tíma og myndaði hrauntjörn.

En er nú tekin aftur tekin að flæða í suðaustur í átt að suðurstrandarveg en þangð eru um 750m núna þegar þetta er ritað klukkan 05:47.

Hraun rennur í átt að Suðurstrandarvegi. Honum hefur verið lokað og sömuleiðis skörðum í varnargörðunum umhverfis Grindavík.

Það stærsta hingað til

Eldgosið sem hófst í gærkvöldi er líklega það stærsta af þeim sjö eldgosum sem upp hafa komið á síðustu þremur árum. Rétt eftir klukkan 22 í kvöld voru um 200 metrar frá því að hraunflæðið næði varnargarðinum norðan Grindavíkur. Hraunið átti þá ca 700 – 800 metra að Grindavíkurvegi.

Veðurstofan hefur uppfært hættumat sitt í ljósi eldgossins og þróun hraunflæðis frá gossprungunni. Hraun rennur áfram hratt í suður og suðaustur. Hraði hrauntungunnar eins og hann var metinn úr eftirlitsflugi Landhelgisgæslunnar er um 1 km á klst.

Haldist kraftur gossins óbreyttur er sú sviðsmynd möguleg að hraun nái til sjávar rétt austan Þórkötluhverfisins í Grindavík.

Gossprungan eru á milli 3-4 km. að lengd.

Beint útsending úr vefmyndavélum RÚV

Auglýsing

læk

Instagram