Anna Mjöll fékk ekki að hitta fjölskyldu eiginmannsins

Söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir skildi við eiginmann sinn, bandaríska söngvarann Luca Ellis, í sumar. Hún rifjaði upp á dögunum á Facebook-síðu sinni hvers vegna fyrrverandi eiginmaður sinn vildi ekki að hún hitti fjölskyldu sína.

„Í tvö ár lofaði hann mér að ég fengi að hitta fjölskyldu hans,“ segir hún. „Dag einn tilkynnti bróðir hans mér svo í síma að konurnar í fjölskyldunni vildu ekki að ég kæmi í heimsókn eftir að þau skoðuðu myndir af mér.“

Þeim fannst ég hafa slæm áhrif á börnin þeirra. Þau sögðu að kjólarnir sem ég klæddist á sviði væru „of glennulegir“. Eiginmaður minn var sammála og sagði að það væri mér að kenna að þau vildu mig ekki nálægt börnunum þeirra vegna þess að kjólarnir mínir létu mig líta út eins og „druslu“.

Anna segir menningu þeirra vera öðruvísi en þá sem hún þekkir. „Alltaf þegar eiginmaður minn nefndi þetta við mig sagði ég að ég myndi klæða mig eins og hann vildi,“ segir hún. „Ég vildi ekki særa eða móðga neinn. Ég vildi bara hitta nýju fjölskylduna mína.“

Auglýsing

læk

Instagram