Ásmundur Friðriksson fékk Leoncie í fertugsafmælisgjöf

Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, velti fyrir sér á Facebook-síðu sinni í gær hvort bakgrunnur múslima sem búa á Íslandi hafi verið kannaður.

Margir hafa gagnrýnt Ásmund, nú síðast Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sem sagði vægast sagt átakanlegt að vera í sama flokki og hann:

Fordómar og fáfræði einkenna ummæli hans og passa engan vegin við þær frelsis- og frjálslyndishugmyndir sem ég trúi að meirihluti Sjálfstæðismanna standa fyrir.

Þar sem Ásmundur er sérstakur áhugamaður um bakgrunnskannanir þá kannaði Nútíminn bakgrunn hans og komst meðal annars að því að hann fékk tónlistarkonuna Leoncie í fertugsafmælisgjöf. Þetta kom fram í frétt Morgunblaðsins í janúar árið 1996.

Í fréttinni kemur fram að Leoncie hafi verið borin í salinn í rauðklæddu baðkari sem rauður dúkur var breiddur yfir:

„Þegar Ásmundur lyfti dúknum af steig fáklædd prinsessan upp og rak honum rembingskoss og dansaði síðan við afmælisbarnið áður en hún fækkaði fötum enn frekar á gólfinu fyrir framan hann,“ segir í fréttinni og hún heldur áfram:

„Ásmundur virtist þokkalega ánægður með þessa gjöf Hrekkjalómanna, en ekki fer sögum af því hvort eiginkona hans hafi verið jafn ánægð með uppátæki félaga hans í Hrekkjalómafélaginu á afmælisdaginn.“

Auglýsing

læk

Instagram