Baðhúsið til leigu í heilu lagi

Fasteignafélagið Reginn auglýsir í dag húsnæðið við Smáralind sem áður hýsti Baðhús Lindu Pétursdóttur til leigu. Hægt er að leigja þetta 1.300 fermetra húsnæði í heilu lagi eða að hluta.

Í auglýsingunni kemur fram að möguleikarnir séu endalausir en að aðstaðan henti vel fyrir starfsemi á borð við hvers kyns heilsu- og líkamsrækt, spa, snyrtistofu, yoga og/eða verslun fyrir tengda stafsemi:

Í rýminu er glæsileg móttaka, heitir pottar, gufuböð, stór tækjasalur, þrír æfingasalir, slökunarrými ásamt mögulegri búningaaðstöðu fyrir bæði kynin.

Auglýsinguna má sjá hér:

Athygli vakti þegar Baðhúsið lokaði í desember. Þá sagði Linda að rekstrargrundvellinum hefði verið kippt undan Baðhúsinu strax í byrjun:

„Hingað komu viðskiptavinir okkar í hálfklárað húsnæði með iðnaðarmenn andandi ofan í hálsmálið á þeim og við þurftum í raun að hefja reksturinn á sífelldum afsökunum, afsláttar- og endurgreiðslum og uppsögnum kvenna sem skiljanlega voru ekki sáttar við stöðu mála,“ sagði hún.

Helgi Gunnarsson, forstjóri fasteignafélagsins Regins, svaraði Lindu í Fréttablaðinu og sagðist telja að Reginn hafa staðið við allt sem samið var um.

Auglýsing

læk

Instagram