Brendan Dassey ekki sleppt úr fangelsi

Áfrýjunardómstóll hefur úrskurðað að Brendan Dassey verði ekki sleppt úr fangelsi. Niðurstaðan er sigur fyrir saksóknarann Brad Schimel sem berst gegn því að Dassey verði sleppt. Dómari hafði fyrirskipað fyrr í vikunni að Brendan Dassey verði sleppt úr fangelsi þegar í stað.

Dassey var ásamt Steven Avery, frænda sínum, dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir morðið á ljósmyndaranum Teresu Hallbach árið 2005. Málið var tekið fyrir í heimildarþáttaröðinni Making a Murderer sem sló í gegn á Netflix í desember í fyrra.

Sjá einnig: Netflix staðfestir nýja þáttaröð af Making a Murderer

Í október var dómurinn yfir Dassey ógiltur. Dómarinn í málinu sagði að umdeildar yfirheyrsluaðferðir lögreglunnar hafi vegið þungt og sagði að játning hans hafi verið þvinguð fram.

Þá sagði hann vinnu­brögð verj­anda Dass­eys hafa verið óboðleg og að Len Kachinsky, sem upp­haf­lega var skipaður verj­andi Dass­eys, hafi eytt meiri tíma í að tala við fjöl­miðla en að vinna í máli hans.

Making a Murderer sló í gegn um síðustu jól á Netflix. Þáttaröðin fjallar um Steven Avery sem var sakfelldur árið 1985 fyrir nauðgun. Hann sat inni í 18 ár en var hreinsaður af þeim ásökunum árið 2003 eftir að lífsýni sýndu fram á sakleysi hans. Honum var í kjölfarið sleppt.

Hann ætlaði að sækja háar bætur til ríkisins en var svo árið 2005 sakfelldur fyrir morðið á ljósmyndaranum Teresu Halbach og afplánar nú lífstíðarfangelsisdóm. Frændi hans, Brendan Dassey, var fundinn sekur um aðild að morðinu.

Þættirnir fjalla ítarlega um réttarhöldin og þykja sýna fram á ýmislegt misjafnt — til dæmis að lögreglumenn hafi komið sönnunargögnum gegn Avery fyrir á heimili hans.

Making a Murderer vöktu gríðarlega athygli og hundruð þúsunda settu nafn sitt á undirskriftalista fólks sem berst fyrir því að mál hans verði tekið upp á ný og honum sleppt.

Afþreyingarrisinn Netflix hefur staðfest að önnur sería Making a Murderer sé væntanleg. Á vefmiðlinum The Verge kemur fram að í nýju þáttunum verði fjallað um líf Steve Avery eftir að hann var sakfelldur fyrir morðið á ljósmyndaranum Teresu Halbach árið 2005.

Þá munu nýju þættirnir einnig fjalla um aðkomu nýrra lögfræðinga að málinu. Netflix gefur ekki upp hvenær þættirnir fara í loftið eða hversu margir þeir verða.

Auglýsing

læk

Instagram