Ný þáttaröð af Making a Murderer væntanleg, fjallað um málið í víðara samhengi

Önnur sería af hinni geysivinsælu heimildarþáttaröð Making a Murderer er væntanleg. Leikstjórinn Shawn Rech mun leikstýra þáttaröðinni sem heitir Convicting a Murderer og inniheldur átta þætti. Deadline greinir frá þessu.

Þessi nýja þáttaröð mun einblína á lagalegu hlið málsins og réttarhöldin yfir Steven Avery sem sakfelldur var fyrir morðið á ljósmyndaranum Teresu Halbach árið 2005. Hann afplánar nú lífstíðarfangelsisdóm en frændi hans, Brendan Dassey, var einnig fundinn sekur um aðild að morðinu.

Fram kemur í frétt Deadlie að saksóknarinn Ken Kratz og yfirmaður rannsóknarinnar, Tom Fassbender muni aðstoða leikstjórann við gerð þáttanna.

„Þegar Making a Murderer kom út voru margar lagahliðar málsins skildar eftir og niðurstaðan var heldur einsleit frásögn. Þessi heimildarþáttaröð mun fjalla um málið í víðara samhengi,“ segir leikstjórinn Shawn Rech.

Auglýsing

læk

Instagram