David og Victoria Beckham á leiðinni til landsins, veiða lax með Björgólfi Thor

Krafthjónin Hjónin David og Victoria Beckham eru á leiðinni til landsins. Þetta kemur fram á vef DV.

Í frétt DV kemur fram að búist sé við að þau lendi á einkaþotu sinni á Reykjavíkurflugvelli í dag og það gestgjafi þeirra sé viðskiptajöfurinn Björgólfur Thor Björgólfsson.

Þá kemur fram að þau ætli að dvelja hér á landi í nokkra daga og að vinahjón verði með í för. „Er meðal annars stefnt að því að þau fari í veiði með Björgólfi og líklegt að Langá verði fyrir valinu,“ segir í frétt DV.

David og Victoriu Beckham þarf ekki að kynna fyrir fólki. Hann var á tímabili einn frægasti fótboltamaður heims og hún söng í Spice Girls, sem er ein vinsælasta stúlknahljómsveit allra tíma.

Björgólfur virðist vera góður kunningi Beckham-hjónanna. Breska blaðið The Daily Mail birti myndir af David Beckham á íshokkíleik í fyrra og þar var Björgólfur með í för.

Auglýsing

læk

Instagram