Eliza birtir krúttlegt bréf sem hún sendi Guðna fyrir 19 árum: „Íslanzka mín er ekki gott, nema vaninn gefur listina“

Eliza Reid forsetafrú, birti í morgun bréf sem hún sendi Guðna Th. eiginmanni sínum, í september 1999. Bréfið er skrifað á íslensku en Eliza sendi það þegar Guðni var á Íslandi, en hún við störf í Englandi. Sjáðu bréfið hér að neðan.

Eliza birtir bréfið í tilefni Dags íslenskrar tungu sem er í dag. „Í dag er Dagur íslenskrar tungu, helgaður tungumálinu og mikilvægi þess í íslensku samfélagi. Af þessu góða tilefni datt mér í hug að deila með ykkur fyrsta bréfinu sem ég skrifaði á íslensku. Ég samdi það ung að árum, 23 ára gömul, þegar ég kynntist Guðna og vildi heilla hann með málsnilld minni. Ég vissi ekki alveg hvað það var ég sem setti saman en ég átti gamla bók með orðatiltækjum á íslensku og ensku (þetta var fyrir daga gúgglþýðinga) og þannig tókst mér að hnoða þessu saman. Hann var hér á Íslandi, ég að vinna úti á Englandi, og með bréfinu fylgdu nokkrar ljósmyndir, væntanlega frá ferð okkar um Snæfellsnes sumarið áður,“ skrifar Eliza.

Bréfið er dagsett þann 26. september árið 1999. „Kæri vinur Guðni, Þau eru ljósmyndirnar. Að mínu áliti, þau eru gott. Íslanzka mín er ekki gott, nema vaninn gefur listina. Eigi að siður, ég hef miklar mætur á enskri tungu. Berðu fjölskylda þín kveðju mína. Virðingarfyllst og með ást,“ segir í bréfinu.

Skemmtilegt

Kæru landsmenn! Til hamingju með daginn. Í dag er Dagur íslenskrar tungu, helgaður tungumálinu og mikilvægi þess í…

Posted by Eliza Reid on Fimmtudagur, 15. nóvember 2018

Auglýsing

læk

Instagram