Elliði, Þjóðhátíðarnefnd og hljómsveitirnar sjö krefjast þess að lögreglan samræmi upplýsingagjöf

Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, Þjóðhátíðarnefnd og hljómsveitirnar Agent Fresco, Dikta, Emmsjé Gauti, GKR, Retro Stefson, Sturla Atlas og Úlfur Úlfur krefjast þess að lögregluumdæmin á Íslandi samræmi upplýsingagjöf um kynferðisbrot. Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu.

Hljóm­sveit­irn­ar Ag­ent Fresco, Dikta, Emm­sjé Gauti, GKR, Retro Stef­son, Sturla Atlas og Úlfur Úlfur koma fram á Þjóðhátíð í Vest­manna­eyj­um í ár. Þetta er niðurstaða fundar sem fór fram í hádeginu í dag.

Páley og upplýsingagjöfin

Vísir greindi frá því í vikunni að nær öll lögregluumdæmi landsins upplýsi fjölmiðla um kynferðisafbrotamál, óski þeir eftir því og að lögregluembættin á Suðurlandi og í Vestmannaeyjum séu einu undantekningarnar.

Þessu vilja Elliði, Þjóðhátíðarnefnd og hljómsveitirnar sjö breyta með það að leiðarljósi að skila skömminni til þeirra sem eiga að bera hana, gerenda. Páley Borgþórsdóttir, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum, sagðist í fréttum í dag ekki ætla að breyta afstöðu sinni né verklagi.

Páley veitti ekki upplýsingar um kynferðisbrot á Þjóðhátíð í fyrra að fyrra bragði. Á þriðjudegi eftir verslunarmannahelgina upplýsti verkefnisstjóri neyðarmóttöku Landspítalans í Fossvogi að þrjár ungar konur hefðu leitað þangað vegna kynferðisbrota sem öll voru framin á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.

Það var svo í september sem Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, beind fyrirspurn til Ólafar Nordal innaríkisráðherra og óskaði eftir að fá að vita hversu mörg kynferðisbrot hefðu verið tilkynnt til lögregluyfirvalda í tengslum við Þjóðhátíð. Ólöf svaraði Helga í október og þá kom loksins fram að fimm kynferðisbrot á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hefðu verið tilkynnt til lögreglu.

Hljómsveitirnar sjö koma fram á Þjóðhátíð

Í hádeginu í dag fór fram fundur fulltrúa listamanna sem hafa dregið sig úr dagskrá Þjóðhátíðar, þjóðhátíðarnefndar og fulltrúa bæjaryfirvalda í Vestmannaeyjum. „Á fundinum fór fram hreinskilin umræða með það að markmiði að setja niður deilur og snúa bökum saman,“ segir í Elliði Vignisson í tilkynningu til fjölmiðla.

Ákveðið var að grípa til bæði táknrænna og raunverulegra aðgerða til að stemma stigu við nauðgunum á útihátíðum sem þessum og er þessu nánar lýst í eftirfarandi sameiginlegri yfirlýsingu aðila.

Í yfirlýsingunni kemur fram að aðstandendur Þjóðhátíðar í Eyjum ætli í samvinnu við bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum að efna til átaks til að vekja þjóðhátíðargesti til vitundar um alvarleika kynferðisbrota.

Þá hyggst Þjóðhátíðarnefnd skipa starfshóp sem markar stefnu til næstu fimm ára um hvernig standa megi enn betur að þessum málum á Þjóðhátíð. „Óskað verður eftir aðkomu þeirra sem best þekkja, þar á meðal fulltrúa Stígamóta. Nauðganir eru vandamál sem snertir alla sem skipuleggja stórhátíðir en Þjóðhátíð hyggst ganga á undan með góðu fordæmi,“ segir í yfirlýsingunni.

„Undirrituð vilja hvetja aðila til samstöðu gegn þeirri þjóðfélagslegu vá sem kynferðisbrot eru og nýta samstöðukraft sinn í að berjast saman. Þjóðhátíð er ekki undanskilin hvað slíkt varðar og getur gengið fram með fordæmi. Það er krafa undirritaðra að lögregluumdæmin samræmi upplýsingagjöf hvað kynferðisbrot varðar með það að leiðarljósi að skila skömminni til þeirra sem eiga að bera hana, gerenda.“

Yfirlýsinguna má lesa hér fyrir neðan:

Nauðgun er einn versti glæpur sem manneskjur geta framið. Nauðgun getur skilið eftir sig stór sár sem fólk ber ævilangt. Allt of stór hluti þeirra sem verða fyrir nauðgun treysta sér ekki til að kæra. Af þeim nauðgunum sem eru kærðar leiða aðeins örfáar til sakfellingar. Yfirleitt vegna skorts á sönnunargögnum. Að ræða kynferðisbrot á opinskáan hátt er eitt af því sem hjálpað getur fórnarlömbum að skila skömminni þangað sem hún á heima. Skortur á umfjöllun veitir gerendum skjól til að fremja sín brot og brotin eiga sér stað víða – ekki bara á útihátíðum.

Aðstandendur Þjóðhátíðar í Eyjum ætla í samvinnu við bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum að efna til átaks til að vekja þjóðhátíðargesti til vitundar um alvarleika kynferðisbrota. Þjóðhátíðarnefnd mun skipa starfshóp sem marka mun stefnu til næstu 5 ára um hvernig standa megi enn betur að þessum málum á Þjóðhátíð. Óskað verður eftir aðkomu þeirra sem best þekkja, þar á meðal fulltrúa Stígamóta. Nauðganir eru vandamál sem snertir alla sem skipuleggja stórhátíðir en Þjóðhátíð hyggst ganga á undan með góðu fordæmi.

Vestmannaeyingar eru stoltir af því að eiga stærstu útihátíð landsins. Stór hluti þjóðarinnar hefur komið á þjóðhátíð Vestmannaeyja og langflestir eiga bara góðar minningar þaðan. Einstök fjölskyldustemning og náungakærleikur þjóðhátíðar, samkenndin sem birtist árlega í brekkusöngnum, gestrisni íbúa Hvítu tjaldanna; allt var þetta okkur innblástur að því að ná sátt í þessu máli.

Undirrituð vilja hvetja aðila til samstöðu gegn þeirri þjóðfélagslegu vá sem kynferðisbrot eru og nýta samstöðukraft sinn í að berjast saman. Þjóðhátíð er ekki undanskilin hvað slíkt varðar og getur gengið fram með fordæmi. Það er krafa undirritaðra að lögregluumdæmin samræmi upplýsingagjöf hvað kynferðisbrot varðar með það að leiðarljósi að skila skömminni til þeirra sem eiga að bera hana, gerenda.

Þá má að lokum geta þess að listamenn, björgunarsveitir og aðrir gæsluaðilar á hátíðinni munu taka þátt í táknrænni athöfn vegna fyrrnefnds átaks á föstudagskvöldinu á þjóðhátíð og með því marka nýtt upphaf og vonandi eina skemmtilegustu og best heppnuðu þjóðhátíð frá upphafi.

Unnsteinn Manuel Stefánsson, tónlistarmaður
Elliði Vignisson, bæjarstjóri
Dóra Björk Gunnarsdóttir, þjóðhátíðarnefnd

Auk eftirfarandi hljómsveita:

Agent Fresco, Dikta, Emmsjé Gauti, GKR, Retro Stefson, Sturla Atlas og Úlfur Úlfur.

Auglýsing

læk

Instagram