Flugþjónn Wowair lét farþega gleyma seinkun með því að leika Magnús Hlyn

Jakob Kristinsson birti frábært myndband á Twitter síðu sinni í gær. Hann var staddur í flugi með Wowair sem hafði seinkað örlítið. Flugþjónn Wowair ákvað að skemmta farþegum vélarinnar með því að fara yfir öryggisatriðin sem Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður Stöðvar 2.

https://twitter.com/JakobKristins/status/1034484330221977600

Magnús Hlynur var sjálfur ánægður með þetta allt saman en hann deildi tísti Jakobs á Facebook síðu sinni í morgun.

Sjá einnig: Hesturinn Kolfinnur stal senunni þegar Magnús Hlynur heimsótti efnilegan söngvara í fréttatíma Stöðvar 2

„Mér finnst frábært þegar það er gert grín að mér. Nú er spurning hvort einhver flugþjónn hjá Icelandair getur ekki toppað þetta?” skrifaði hann.

Auglýsing

læk

Instagram