Gallup sendir frá sér tilkynningu í kjölfar umfjöllunar DV: „Harmar að blaðamaður hafi villt á sér heimildir“

Rannsóknin á leikjum í spilakössum var gerð í mörgum löndum til að þróa vöru og notendaviðmót. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Gallup, sem send er út í kjölfar umfjöllunar DV í dag. Gallup harmar að blaðamaður hafi villt á sér heimildir og birt upptökur án samþykkis þeirra sem í hlut eiga.

Í DV kemur fram að spilafíklar hafi verið á meðal þeirra sem Gallup fékk til að prófa nýja leiki í spilakössum Íslandsspils, sem er í eigu Rauða krossins, Landsbjargar og SÁÁ. Ekki var auglýst eftir þátttakendum heldur voru spilasalir heimsóttir og fólki þar boðið að taka þátt. Samkvæmt umfjöllun DV var skilyrði að viðkomandi spilaði fyrir háar fjárhæðir.

Í tilkynningu Gallup kemur fram að engir spilavinningar voru í boði fyrir þátttakendur en samkvæmt umfjöllun DV voru þeir leystir út með 15 þúsund króna gjafabréf í Smáralind. „Að gefnu tilefni skal tekið fram að Gallup er hlutlaust rannsóknarfyrirtæki sem fylgir skilgreindum vinnuferlum um framkvæmd rýnihópa,“ segir í tilkynningu Gallup.

Rýnihópar eru þekkt aðferðafræði í markaðsrannsóknum sem veita innsýn í viðhorf og upplifun þátttakenda. Þátttakendur í rýnihópa eru valdir með tilliti til þeirrar vöru eða þjónustu sem verið er að kanna hverju sinni.

Í tilkynningunni kemur fram að í þessu tilfelli var um að ræða rannsókn sem gerð hefur verið í mörgum löndum í þeim tilgangi að þróa vöru og notendaviðmót. Það skal tekið fram að engir spilavinningar voru í boði fyrir þátttakendur.

Prófanirnar fóru fram í höfuðstöðvum Gallup í Glæsibæ. Blaðamönnum DV tókst að fá boð í prófanirnar með því að hafa samband við Gallup undir fölsku flaggi og kynna sig sem áhugamenn um spilakassa. Sögðust þeir spila fjórum til fimm sinnum í viku og eyða frá þremur upp í tólf tíma í spilasalnum.

Þátttakendur fengu 15 þúsund króna gjafabréf í Smáralind fyrir að prófa leikina. DV hefur eftir einum úr rýnihópnum að enginn spili í þessum kössum sér til skemmtunar. „Það dettur engum í hug að bjóða fjölskyldunni einn sunnudaginn í Gullnámuna eða í kassa hjá Íslandsspilum því það er svo gaman. Það er bara af og frá. Þetta er algjört helvíti,“ sagði hann.

Auglýsing

læk

Instagram