Helgi Pírati útskýrir af hverju það á ekki að loka Facebook-hópi Gylfa Ægis

Með því að stofna Facebook-síðuna Barnaskjól varð Gylfi Ægisson einhvers konar talsmaður fólks sem berst gegn því að börn í Hafnarfirði fá hinseginfræðslu.

 

Facebook-hópurinn Barnaskjól vill „stöðva innrætingu Samtakanna 78 á skólabörnum.“. Ástæðan er sú að bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkti á fundi sínum í síðustu viku tillögu Samfylkingarinnar um að efla hinseginfræðslu í grunnskólum bæjarins. Meira um það hér.

Sjá einnig: Sjö hrikalegustu ummælin frá hlustendum Útvarps Sögu um hinseginfræðslu

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, sagði á Alþingi í dag að kyn­frelsi, hinseig­in­fræðsla og umb­urðarlyndi séu sterk­ari málstaðir en svo að þeir krefj­ist skoðanakúg­un­ar til að bera sig­ur af hólmi. „Allra versti óvin­ur for­dóm­anna er opin frjáls umræða.“

Hann sagði skoðun Gylfa á sam­kyn­hneigð þjóðþekkta enda ein óvin­sæl­asta skoðunin á land­inu í dag.

En þrátt fyr­ir full­kom­inn ósig­ur hans í umræðunni nú sem fyrr er strax kom­in fram sú krafa að til­kynna síðu hans sem hat­ursáróður og þar með fá henni lokað. Halda má því til haga að það er ákvörðun Face­book, ekki okk­ar. En það er þó fullt til­efni til að mót­mæla slík­um kröf­um. Menn hætta ekki að hafa skoðanir með því að þeim sé bannað að tjá þær.

Helgi sagði að þvert á móti sann­fær­ir þögg­un fólk um það eitt að sam­fé­lagið sé rökþrota.

„Að fólk sem berj­ist gegn for­dóm­um þori ekki einu sinni að verja stuðning sinn við eitt­hvað jafn­sjálfsagt og hinseig­in­fræðslu og kyn­frelsi og umb­urðarlyndi.“

Hann sagði að lokum að vond­ar skoðanir yrðu að heyr­ast til að hægt væri að tak­ast á við þær.

„Með því að þagga niður í óvin­sæl­um skoðunum lok­um við aug­un­um fyr­ir vand­an­um og skilj­um hann eft­ir jafnóú­k­ljáðan og áður. Börn for­dóma­fulls fólks mun halda áfram að heyra slík­um skoðunum varpað fram á heim­il­inu jafn­vel ef tekið er fyr­ir þær á svæðum eins og Face­book. Mun­ur­inn er sá að á heim­il­inu heyr­ast ekki einnig viðbrögð sam­fé­lags­ins.“

Auglýsing

læk

Instagram