Jay-Z sendi Beyoncé afmæliskveðju á Youtube

Söngkonan Beyoncé Knowles varð 33 ára á fimmtudaginn. Að því tilefni kom eiginmaður hennar, rapparinn Jay-Z, henni á óvart með því að birta myndband henni til heiðurs á Youtube. Myndbandið er einmitt 33 sekúndur á lengd og sýnir söngkonuna hæfileikaríku á afar fögru ljósi.

https://www.youtube.com/watch?v=8wioINkv3bs#t=17

Þetta var ekki það eina sem hann gerði en það sást til hjónanna stíga út úr einkaþotu á eyjunni Korsíku, undan suðurströnd Frakklands á dögunum. Þar er búist við að þau dvelji í nokkra daga og fagni afmæli drottningarinnar.

Auglýsing

læk

Instagram