Jennifer Garner og Ben Affleck skilja eftir tíu ára hjónaband

Jennifer Garner og Ben Affleck hafa sótt um skilnað eftir tíu ára hjónaband. Það eru 40 ár í Hollywood árum. Eða eitthvað svoleiðis.

Í sameiginlegri yfirlýsingu segjast þau hafa tekið þessa erfiðu ákvörðun eftir mikla umhugsun.

Ást okkar og vinátta heldur áfram ásamt því að við munum sinna uppeldi barna okkar í sameiningu. Við óskum eftir því að friðhelgi einkalífs þeirra verði virt á þessum erfiðu tímum.

Garner og Affleck ætla ekki að tjá sig meira um málið og þakka fjölmiðlum fyrirfram fyrir skilninginn.

Fjölmiðlar vestanhafs höfðu greint frá brestum í hjónabandi þeirra fyrr í mánuðinum. Affleck ku vera mikill vinnufíkill sem fór illa í Garner sem þurfti að sinna börnunum þeirra þremur, Violet, 9 ára, Seraphina, 6ára og Samuel, 3 ára.

Þau giftu sig í júní árið 2005.

Auglýsing

læk

Instagram